Vildi að þessi titill væri ekki bara lygasaga.....já prófin eru að skríða í garð og fylgir þeim sjaldan gleði á þessum bænum
er ekki mikið fyrir það að sitja yfir bókunum og finn mér nú yfirleitt eitthvað annað mikilvægt að gera eins og t.d reikna út hvað ég kem sirka til með að þéna hvern mánuð fyrir sig næstkomandi mánuði og leita að líklegri utanlandsferð svo eh sé nefnt
Fyrsta próf á morgun og er það verkleg rafmagnsháreyðing þar sem ekki aðeins á ég eftir að grilla nokkur vel valin hár á höku einhverrar indællar konu heldur á Inga Kolbrún væntanlega eftir að grilla mig í eftirrétt með einhverjum vel völdum spurningum sjæse
Helgin búin að vera með eindæmum róleg .....sem þýðir það að þetta er önnur helgin í röð sem er með eindæmum róleg hjá frk Fjeldsted....er ekki örugglega einhver að skrifa þetta hjá sér?????
Á föstudaginn var náttla bara aftaka veður með eldingum og tilheyrandi ruddaskap hjá vetri konungi!!! ég barðist heim til ástríðar eftir vinnu og hélt mig þar. Ástríður var búin að fara til mömmu sinnar að sníkja pizzu fyrir okkur og svo var það bara bjór, rauðvín og kósyheit. Fórum bara tímanlega í rúmið og tímanlega á fætur, hún aðeins meira tímanlega en ég þar sem hún þurfti að fara vinna kl 9 og DJÖFULL var gott að mega sofa lengur og hlusta á hana gera sig reddy.... hehe love it! Finnst ekkert smá þægilegt að kúra mig í sængina og hlusta á aðra hafa sig af stað út (þýðir það nokkuð að ég sé illa innrætt??
) ég drösslaðist svo á fætur og fór með stelpunum í jump fit og thai box tíma....sjæse segi ég nú bara!! þetta er bara dauði og auðvitað skráðum við okkur á 6 vikna námskeið enda harðar með eindæmum
í dag er ég með haðrsperrur á undarlegustu stöðum og vöðvum sem vissi ekki að væru til sem dæmi má nefna í iljunum og neðst í maganum sem virkar eins og harðsperrur í eggjastokkunum
eftir tímann fór ég svo í dekur í boði Ástríðar minnar en hún bauð mér í pottinn á nordica þar sem ég fékk æðislegt herðanudd ummmm
Í gærkvöldi tók ég mér svo spólur bara og hafði það rólegt...það var kjellingamyndamaraþon hehe! Tók no reservations sem ég hélt að væri rómantísk gamanmynd...kom svo í ljós að þetta var bara amk 4 klúta mynd (á minn mælikvarða amk) fór svo og skutlaði nokkrum djammþyrstum í bæinn og horfði svo á hina myndina sem var með afburðum leiðinleg......og ef þér finnst ég sorgleg þá er það rangt!!!! bara sjálf/ur hehehe
Síðasti dagurinn á Caritu var á föstudaginn....hefði alveg verið til í að vera lengur rosa fínt að vera þar. Framundan er því bara próf næstu 2 vikurnar og svo bara byrja á fullu í Baðhúsinu....verð reyndar örugglega ekkert mikið þar í mars þar sem ég er að fara út en ætla samt að taka nokkrar vaktir með prófunum. Maður lifir víst ekki á loftinu í mars
Jæja er að hugsa um að reyna lesa smá svo ég geti kannski ropað út úr mér 1-2 svörum á morgun...........